fbpx

Ertu að fresta lífinu?

Borðarðu einhvern tímann ís án þess að fá samviskubit og hugsa, hmm ég er nú of þung/ur? Ertu stöðugt að fresta því að fara í frí, þangaði til þú hefur safnað nægum peningum fyrir fríinu eða bara þangað til stendur betur á?  Frestarðu skemmtilegum tækifærum, vegna þess að þú telur þig hafa annað meira áríðandi verkefni sem þarf að ljúka? Ég veit að ég er 100%  sekur um um þessi atriði núna.

Lífið þitt líður hjá, á meðan þú finnur þér stöðugt afsakanir, engin veit sína ævi, svo það er rétt að njóta hverrar stundar með þeim sem skipta þig máli, núna strax.  Ekki vera of upptekinn að lifa lífinu þannig að þú sért alltaf að velta fyrir þér hvað aðrir eru að hugsa, eða hvernig þú heldur að aðrir haldi að þú eigir að lifa því.
Þegar syrgjendur koma saman og kveðja látin ástvin, þá renna tárin yfir söknuði um orðin sem ekki voru sögð og hlutina sem ekki voru gerðir saman. Veltu því fyrir þér í smá tíma og komdu þér svo af stað að koma hlutunum í verk.

Hvenær fékkstu þér seinast girnilega súkkulaðiköku? Hvenær komstu óvænt í heimsókn til vinar, sem þú ert búinn að ætla að heimsækja í marga mánuði eða ár? Hvað með að fara út með börnunum að leika í snjónum, fara í bíó, hafa spilakvöld eða bara gera eitthvað sem ykkur finnst skemmtilegt?

Ég hef lesið ófáar sögur um fólk, konur og menn sem eru komin á seinasta aldurskeið í lífinu sínu, þar sem það segir frá því hvað það sjái mest eftir í lífinu.  Þau óskuð sér að þau hefðu leikið sér meira. Þau óskuð sér að þau hefður borðað meiri rjómaís án þess að vera með samviskubit. Þau óskuðu þess að þau hefðu ferðast meira og átt meiri og betri stundir með fjölskyldu sinni, maka og börnum.
Ég veit að það er auðvelt að líta til baka, en þegar þú ert í amstri dagsins þá er koma afsakanirnar endalaust um að gera þetta seinna, þegar betur stendur á.  Láttu ekki afsakanrinar standa í vegi fyrir því að þú njótir lífsins á hverjum tíma.
Í þessari viku skaltu leyfa barninu í þér að koma út að leika sér.

Nokkrir ráð fyrir vikuna:

  1. Hvað er það sem þú hefur endalaust verið að fresta?Hvað hefur þú endalaust verið að hugsa um að gera, en alltaf frestað?  Hefur þig langað að sjá einhvern stað? Hefur þið langað til að bjóða vinum í mat? Hefur þig langað til að fara helgarferð með fjölskyldunni eða eiga skemmtilega stund með makanum? Að halda endalaust áfram að tala um hlutina, lætur þá ekkert gerast hraðar.  Veldu eitt sem þig hefur lengi langað til að gera og framkvæmdu það.
    2. Aðgerðarplanið.Það er þýðingarlaust að tala um hlutina ef það fylgja ekki aðgerðir á bak við orðin. Ef þig hefur verið að dreyma um að eiga skemmtilega helgi með makanum, hvað þarf í raunveruleikanum til að það geti gerst?  Hvenær hafið þið lausan tíma, hvað mun það kosta, þurfið þið að spara eitthvað til að gera þetta raunverulegt.  Skrifaðu niður nákvæman lista yfir öll skrefin sem þið þurfið að taka til að þetta verið raunverulegt.  Athugið að það þarf ekki að kosta neitt nema tíma að gera skemmtilega hluti.  Að skrá markmið niður í hluta sem eru aðgengilegir, auka líkurnar til muna um að þú náir takmarki þínu. Byrjaðu strax!3. Skemmtu þér.

    Hvenær kemur betri tími til að skemmta og leika sér, upplifa sig eins og barn aftur? Við erum aðeins að eldast,  svo er ekki tími núna til að snúa á tímann og leika sér.  Skrifaðu niður lista yfir það sem þig langar til að gera og þú hefur gaman af.  Fá sér bananasplitt. Sjá bíómynd.  Dekurdag í heilsuræktinni. Út að borða og gista nótt á hóteli. Prófa fallhlífarstökk eða svifflug.  Einsettu þér að fá meiri gleði inní lífið þitt.

Gangi þér vel.

Ertu að fresta lífinu?
Nýlegar færslur
Hafðu samband

Sendu okkur skilaboð og við svörum við fyrsta tækifæri

Ekki læsilegt? Skipta um texta. captcha txt